HSS
HSS

Fréttir

Forráðamenn Grindavíkurbæjar þrýsta á úrbætur í málefnum heilsugæslu og Víðihlíðar
Mánudagur 16. október 2006 kl. 15:59

Forráðamenn Grindavíkurbæjar þrýsta á úrbætur í málefnum heilsugæslu og Víðihlíðar

Fulltrúar bæjaryfirvalda í Grindavík funduðu í síðustu viku með starfsmönnum Heilbirgðisráðuneytis þar sem m.a var rætt um málefni heilsugæslustöðvar Grindavíkur. Einnig var rætt um stöðu hjukrunarheimilisins að Víðihlíð og uppbyggingu félagsaðstöðu eldri borgara í bænum.
Óviðunnandi ástand hefur verið  í læknamálum í Grindavík og er biðtími eftir læknatíma allt að 3-4 dagar. Samkvæmt frétt á vef Grindavíkurbæjar mun ráðuneytið hafa lofað að kynna sér málið og leggja bænum lið um úrbætur. Á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð dvelja nú um 25 vistmenn og bíða 6 manns eftir vistun. Um 40 manns vinna við heimilið. 
Á fundinum kom fram að bæjaryfirvöld legðu mikla áherslu á að framtíð Víðihlíðar verði tryggð.  Einnig var rætt um frekari uppbyggingu félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð.
Ráðgert er að halda fund á miðvikudag með framkvæmdastjóra HSS og munu þingmenn í kjördæminu mæta til hans ásamt forráðamönnum Grindavíkurbæjar.

Mynd: Víðihlíð í Grindavík.

Bílakjarninn
Bílakjarninn