Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Mánudagur 2. desember 2002 kl. 09:24

Fornminjar fundnar í Kirkjuvogi í Höfnum

Fundnar eru minjar sem taldar eru vera frá landnámsöld, skammt frá Kirkjuvogskirkju í Höfnum, að öllum líkindum skáli og útihús segir í Morgunblaðinu. Forstöðumaður Byggðasafns Reykjanesbæjar telur ekki fráleitt að fundinn sé bústaður Herjólfs Bárðarsonar. Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur stjórnar skráningu fornminja í Reykjanesbæ. Þegar farið var að skoða loftmyndir af Höfnum taldi hann sig strax sjá móta fyrir landnámsskála. Í gærdag var grafin hola ofan í miðjan skálann og þar fengust vísbendingar um að kenning Bjarna væri rétt þótt frekari rannsóknir eigi eftir að fara fram. Komið var niður á heillegt gólf frá landnámsöld og hleðslu sem talið er að geti verið úr langeldinum. Þarna fannst brot úr brýni og af járnhring, viðarkol og soðsteinar. Bjarni telur allar líkur á að þarna hafi verið skáli og útihús á landnámsöld. Hann sér móta fyrir 5 öðrum tóttum á svæðinu og garði. Jón Borgarsson, sem lengi hefur búið skammt frá þessum stað, sagði að nú áttuðu menn sig á því hvað þeir hefðu verið vitlausir að vera ekki búnir að sjá þetta út fyrir löngu. Allt Reykjanesið tilheyrir landnámi Ingólfs Arnarsonar. Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðumaður Byggðasafns Reykjanesbæjar, rifjar það upp að Ingólfur hafi gefið vini sínum og fóstbróður, Herjólfi Bárðarsyni, landið milli Vogs og Reykjaness. Hann hafi búið í Vogi sem menn hafi til þessa helst talið að væri gamli Kirkjuvogur, sem er norðan Ósabotna. Fornleifafundurinn geti bent til þess að Herjólfur hafi byggt bæ sinn þar sem nú eru Hafnir en hann verið fluttur yfir Ósbotna 100 árum síðar. Fyrir liggi að bærinn hafi á 16. öld verið fluttur til baka en Kirkjuvogsbærinn stóð eftir það skammt frá kirkjunni og þá um leið gömlu tóttunum.

Sigrún Ásta segir að þetta sé mikilvægur fornleifafundur. Mikilvægt sé að hefja viðamikla rannsókn á staðnum og víðar því Reykjanesið hafi lítið verið rannsakað. Tóttirnar eru inni í miðju byggðahverfinu í Höfnum og þær gætu nýst við uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024