Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Foreldrar hvattir til að tala við börn og lesa fyrir börn
Þriðjudagur 19. nóvember 2013 kl. 08:04

Foreldrar hvattir til að tala við börn og lesa fyrir börn

Haustið 2011 var farið af stað með nýjar og markvissar áherslur á læsi og stærðfræði í leikskólum Reykjanesbæjar, Garði og Sandgerði. Leikskólarnir hafa unnið ötullega að þessum markmiðum eftir fjölbreyttum leiðum.

Foreldrar eru ákaflega mikilvægir þegar kemur að því að efla færni barna og hjálpa þeim fyrstu skrefin í átt að læsi.  Í leikskólunum hefur verið lögð rík áhersla á mikilvægi þeirra hlutverks.

Umræður hafa verið meðal leikskólakennara um hvernig hægt væri að styrkja foreldra til að undirbúa barnið sitt sem best fyrir nám í lestri. Í framhaldi af því kom upp sú hugmynd að láta gera segla sem foreldrar geta fest á ísskápinn þannig að góðu ráðin séu ávallt innan seilingar. Er það von okkar að að seglar með góðum  ráðum styðji foreldra.

Vikan  18.-22. nóvember verður tileinkuð  bókum og lestri í leikskólunum. Í tilefni af því býður Penninn-Eymundsson í Reykjanesbæ 20 % afslátt af barnabókum daganna 21.-23. nóvember nk.

Fyrstu seglarnir voru afhentir elstu börnunum á Heiðarseli í gær.







Þessi heilræði er gott að hafa í huga. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024