Foreldrar ánægðir með skólastjóra í Reykjanesbæ
Foreldrar nemenda í Reykjanesbæ eru afar ánægðir með skólastjórana sína. Þessar upplýsingar koma fram í Skólavoginni þar sem safnað er saman upplýsingum um starf grunnskóla á Íslandi.
Í Skólavoginni kemur fram að skólastjórar í Reykjanesbæ voru í 4. sæti af þeim 27 sveitarfélögum sem tóku þátt í foreldrahluta könnunarinnar hvað varðar ánægju með störf þeirra.
Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri er að vonum ánægður með sitt fólk og segir að vel hafi tekist til með val á skólastjórum. „Skólafólkið okkar hefur það að markmiði að laða fram það besta í hverjum og einum og búa nemendur undir fullorðinsárin. Mat foreldrahópsins á störfum skólastjóranna bendir eindregið til að það sé þeim að takast,“ segir Gylfi Jón.