Foreldrafélagið gaf framhaldsskólanemum örbylgjuofn
Foreldrafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur fært nemendum skólans örbylgjuofn að gjöf. Ofninn verður staðsettur í sal skólans við mötuneytið og bætist við örbylgjuofn sem þar var fyrir og er mikið notaður. Gjöfin ætti því að nýtast nemendum vel. Kristján Ásmundsson, skólameistari FS, og Páll Orri Pálsson, formaður nemendafélagsins NFS, tóku við gjöfinni en þær Berglind Ósk Sigurðardóttir og Drífa Guðmundsdóttir, sem sitja í stjórn foreldrafélagsins, afhentu gjöfina.