Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Fordæma minnkun hvalaskoðunarsvæðis
Mánudagur 8. júlí 2013 kl. 14:08

Fordæma minnkun hvalaskoðunarsvæðis

Samtök ferðaþjónustunnar fordæma ákvörðun sjávarútvegsráðherra að minnka hvalaskoðunarsvæðið í Faxaflóa án samráðs við hvalaskoðunarsamtökin og Samtök ferðaþjónustunnar. Hvalaskoðun frá Keflavík hófst að nýju fyrr í sumar. Nýtt félag var stofnað á dögunum, Hvalaskoðun Keflavíkur eða Airport Whale Watching sem gerir út bátinn Moby Dick en hann er í eigu Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur. Helga Ingimundardóttir fer með ferðamenn á hvalaskoðunarbátnum Moby Dick.

Við sögum frá því nýlega að Helga hafi farið með leikkonuna Tildu Swinton og fjölskyldu hennar til að skoða hvali hér í Faxaflóa og hún hefði verið mjög hrifin, séð marga hvali og fjölskrúðugt fuglalíf.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Hvalaskoðun er stærsta auðlind ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu með árlega veltu upp á tæpan milljarð og skapar í umhverfi sínu hundruð starfa. Með ákvörðun sjávarútvegsráðherra er hagsmunum og framtíð greinarinnar fórnað fyrir sérhagsmuni örfárra einstaklinga sem hafa takmarkaðar tekjur af hrefnuveiðum.

Í áliti nefndar um stefnumörkun í hvalveiðimálum, sem skipuð var af fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, kemur fram  að meirihluti hennar telji ljóst að umfang hvalaskoðunar og þjóðhagslegt mikilvægi hennar hafi aukist á undanförnum árum og mikilvægt sé að umgjörð hvalaskoðunar og hvalveiða sé með þeim hætti að ásættanlegt teljist fyrir báðar atvinnugreinar.  Nefndin lagði til að griðasvæðið yrði stækkað þannig að  miðað væri við beina línu frá Garðskagavita að Arnarstapa. Ákvörðun ráðherra gekk þó skemur til að fara bil beggja og kemur því ákvörðun um minnkun griðasvæðisins nú ferðaþjónustunni í opna skjöldu, enda hafa engar rannsóknir sýnt að hvalaskoðun hafi áhrif á hrefnuveiðar.

SAF krefjast þess að hvalaskoðunarsvæðið við Faxaflóa verð nú þegar fært til fyrra horfs.

Helga með leikkonunni og fygldarliði í Moby Dick nýlega.