Mánudagur 9. apríl 2001 kl. 10:01
Fór útaf í Hvassahrauni
Lögreglan í Keflavík tók í morgun tvö ökumenn sem grunaðir eru um ölvun við akstur. Annar þeirra ók bifreið sinni út af Reykjanesvegi. Ökumaður var einn í bifreiðinni og slapp hann ómeiddur. Bifreiðin skemmdist nokkuð og þurfti að fjarlægja hana með dráttarbifreið.