Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Fór tvær veltur á Grindavíkurvegi
Laugardagur 18. nóvember 2017 kl. 12:00

Fór tvær veltur á Grindavíkurvegi

Bílvelta varð á Grindavíkurvegi í síðustu viku þegar ökumaður ók út á vegöxl og missti við það stjórn á bifreiðinni. Hún fór tvær veltur og endaði á hvolfi. Einn farþegi var í bílnum og virtist hann hafa sloppið með minni háttar meiðsl og ökumaðurinn ómeiddur, en farþegarnir voru engu að síður fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar.

Nokkuð hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni, þá einkum á Grindavíkurvegi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Annar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Reykjanesbraut með þeim afleiðingum að hún hafnaði á víravegriði. Ökumaðurinn fann til verkja eftir óhappið og var fluttur á HSS með sjúkrabifreið. Töluverðar skemmdir urðu á bifreiðinni og vegriðinu.