Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Fór í sturtu og var rændur
Miðvikudagur 17. maí 2017 kl. 06:00

Fór í sturtu og var rændur

Íbúi í Reykjanesbæ, sem brá sér í sturtu að næturlagi um helgina, var tveimur armbandsúrum, allmörgum áfengisflöskum og einni rafrettu fátækari þegar sturtuferðinni lauk. Hann hafði heyrt umgang í íbúðinni en taldi að þar væri sambýlingur sinn á ferð. Svo var þó ekki því hinn síðarnefndi svaf svefni hinna réttlátu í rúmi sínu þegar að var gáð. Ljóst var að óboðinn gestur hafði farið um ránshendi meðan á sturtuferðinni stóð.

Þá var brotist inn í verkstæði í umdæmi Lögreglunnar á Suðurnesjum og tveimur verkfærakistum stolið úr bifreið sem þar var inni.

Public deli
Public deli