Fór í gegnum skólagirðingu
Mildi þykir að ekki fór verr þegar tveir bílar skullu harkalega saman fyrr í dag á mótum Hringbrautar og Miðtúns í Reykjanesbæ. Við áreksturinn hentist annar bíllinn upp á gangstétt og í gegnum girðinguna við lóð Myllubakkaskóla. Blessunarlega voru engin börn að leik innan við girðinguna en skólatíma var lokið. Talsvert tjón varð á báðum bílunum.