Fór á bólakaf við Ægisgötuna
Ökumaður lítillar fólksbifreiðar sem ók niður Ægisgötuna í Keflavík í morgun festi bifreiðina í jarðvegi á götunni. Eftir dálitla stund fór að flæða upp að bifreiðinni með þeim afleiðingum að bíllinn var nánast kominn á bólakaf.Kallað var á Lögreglu en dráttarbíll var kallaður út og átti að reyna að draga bifreiðina upp. Engin meiðsl urðu á fólki.