Fólk yfirgaf bifreiðar í blindbyl á Brautinni
Nokkuð var um að fólk yfirgæfi bifreiðar sínar á Reykjanesbraut í dag þegar veðrið var sem verst. Þá var blindbylur á Brautinni og sást vart út úr augum.Ægir Ágústsson, varðstjóri hjá lögreglunni í Keflavík, sagði þetta hafa komið sér illa fyrir snjóplóga Vegagerðarinnar og hafi tafið fyrir hreinsun vegarins.
Tvö umferðaróhöpp urðu í dag en þeim hafa verið gerð skil í öðrum fréttum á fréttavef Víkurfrétta í dag.
Tvö umferðaróhöpp urðu í dag en þeim hafa verið gerð skil í öðrum fréttum á fréttavef Víkurfrétta í dag.