Sjómannakveðjur 2
Sjómannakveðjur 2

Fréttir

Fólk í hjólastólum kemst ekki á allar kosningaskrifstofur
Mánudagur 20. apríl 2009 kl. 09:37

Fólk í hjólastólum kemst ekki á allar kosningaskrifstofur


Fólk bundið við hjólastóla kemst ekki inn á allar kosningaskrifstofur stjórnmálaflokkanna í Reykjanesbæ. MND félagið á Íslandi kannaði aðgengi hjólastóla sl. föstudag og var það niðurstaða könnunarinnar að fullnægjandi aðgengi var aðeins hjá Frjálslynda flokknum og hjá Samfylkingunni. Það var þó ekki fullkomið þar sem aðstaða á salerni var ekki fyrir fatlaða en þeir komust þó inn á salernin í hjólastólunum.

Meðfylgjandi er samantekt úr ferðalaginu um Reykjanesbæ. Farið var að kosningaskrifstofum Frjálslyndaflokksins, Vinstri grænna, Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar. Skrifstofa Framsóknarflokksins var læst og mannlaus þegar komið var að henni á opnunartíma verslana sl. föstudag. Aðrar voru opnar.




Hjá Frjálslyndum

Kristinn Guðmundsson, sem á sæti í stjórn MND félagsins á Íslandi, komst auðveldlega inn um dyrnar hjá Frjálslyndaflokknum á skrifstofu þeirra við Hafnargötuna í Keflavík. Þeir hafa skrifstofu sína í nýlega endurbyggðu verslunarhúsnæði. Hjólastóllinn komst alla leið inn á salerni þar sem Kristinn gat athafnað sig. Boðið var upp á veitingar og starfsmaður flokksins var meðvitaður um samþykktir Sameinuðu þjóðanna um jafnan rétt allra.




Hjá Vinstri Grænum

Útsendari MND félagsins komst ekki inn á kosningaskrifstofu Vinstri Grænna sem er í gömlu verslunarhúsnæði við Hafnargötuna. Þar er hár þröskuldur þar sem rafdrifnir hjólastólar fara ekki yfir. Hjá VG buðust menn til að kippa hjólastólum innfyrir. Kristinn sagði það ekki í boði, enda stóll og maður yfir 200 kg. Þar sem stóllinn komst ekki inn þótti ekki ástæða til að kanna aðgengi að salerni. Útsendari MND félagsins gat fengið veitingar í hjólastólinn út á stétt og starfsmaður VG var meðvitaður um samþykktir Sameinuðu þjóðanna um jafnan rétt allra.
Hjá Vinstri Grænum var lofað að vinna bót á málum varðandi aðgengi hjólastóla að kosningaskrifstofu þeirra við Hafnargötu.




Hjá Sjálfstæðisflokknum

Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins á Íslandi og Kristinn Guðmundsson, stjórnarmaður, komust auðveldlega inn á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins við Hólagötu í Njarðvík. Hún er rekin í húsnæði sem á sínum tíma var innréttað sem veitingahús. Hins vegar er ekkert aðgengi fyrir hjólastóla á salerni. Veitingar voru í boði og starfsenn flokksins voru meðvitaðir um samþykktir Sameinuðu þjóðanna um jafnan rétt allra.




Hjá Samfylkingunni

Samfylkingin rekur kosningaskrifstofu sína í Reykjanesbæ í húsnæði fyrrum bílasölu við Bolafót í Njarðvík. Þar eiga hjólastólar auðvelt með að komast inn um stórar innkeyrsludyr, þar sem væri þess vegna hægt að koma inn sérútbúnum lyftubíl fyrir hjólastóla. Hjólastóll kemst inn á salerni en þar vantar þó betri aðstöðu fyrir hjólastólafólk. Samþykktir Sameinuðu þjóðanna voru á hreinu og allir sammála um þær. Veitingar voru í boði.



Hjá Framsóknarflokknum
Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ var lokuð og læst þegar útsendarar MND félagsins voru þar á ferð sl. föstudag um kl. 17:45. Þar eru engir þröskuldar til að fara yfir en ekki vitað um annan aðbúnað fyrir hjólastóla.

Bílakjarninn
Bílakjarninn