Fólk hefur vonandi vit á því að fara varlega
„Fólk hefur vonandi vit á því að fara varlega.“ Þetta skrifar forseti Íslands í færslu á Facebook um eldgosið sem hófst við Litla-Hrút síðdegis í dag. „Auðvitað er magnað að verða vitni að mætti náttúruaflanna en sýnum gát og höfum tilmæli Almannavarna í huga,“ segir forsetinn jafnframt. Færsluna má lesa hér að neðan:
„Gosið er byrjað. Það leið nánast hálf öld upp á dag frá því að eldgosinu í Heimaey lauk þar til eldsumbrot hófust á ný á Reykjanesskaga, í þriðja sinn á þremur árum. Blessunarlega er ólíku saman að jafna, lítil hætta á ferðum við fyrstu sýn og fólk hefur vonandi vit á því að fara varlega. Auðvitað er magnað að verða vitni að mætti náttúruaflanna en sýnum gát og höfum tilmæli Almannavarna í huga. Nú hefur svæðinu verið lokað vegna hættu af gasmengun. Héðan frá Bessastöðum sést til gossins í fjarska og við fylgjumst áfram með framgangi þess eins og þið öll, úr öruggri fjarlægð,“ segir í færslu Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, á Facebook.
Hér að neðan má sjá streymi úr einni af vélum mbl.is frá gosinu