Föstudagur 14. apríl 2000 kl. 23:21
FMS seldi 32.689 tonn í fyrra

Fiskmarkaður Suðurnesja seldi 32.689 tonn í fyrra. Þetta er 2% minni sala en árið áður. Söluverðmæti var 3.526 milljónir, sem er 13% hærra en árið áður. Þetta kom fram á aðlafundi FMS í gærdag.Fiskmarkaður Suðurnesja á og rekur nokkur dótturfélög. Hagnaður af reglulegri starfsemi samstæðunnar var 12,2 milljónir króna, en eftir skatta 10,3 milljónir, sem svarar 3% af rekstrartekjum.Hagnaður af reglulegri starfsemi móðurfélagsins var 11 milljónir. Heildartap samstæðurnnar af dóttur- og hlutdeildarfélögum nam 3 milljónum kr. en móðurfélagsins um samtals 3,8 milljónir kr. Hagnaður af rekstri FMS nam alls 3 milljónum kr.