Bygg
Bygg

Fréttir

FMS segir meðalverð ekki hafa farið niður fyrir 200 krónur
Þriðjudagur 10. febrúar 2009 kl. 12:04

FMS segir meðalverð ekki hafa farið niður fyrir 200 krónur



Fiskmarkaður Suðurnesja segir það rangt að meðalverð á þorski hafi farið niður fyrir 200 krónur í janúar eins og fram kom í frétt á vf.is nú um helgina. Í fréttinni var sagt frá því að sumir sjómenn sæju sér ekki hag í að fara til sjós þar sem leiguverð á þorskvóta væri það hátt og verð á mörkuðum hefði lækkað. Vitnað var í tölur sem fram komu á fréttavefnum www.aflafréttir.com en þar segir að meðalverð hafi farið niður í 185 krónur í lok janúar. Leiguverð hafi því verið hærra en það verð sem fékkst fyrir aflann á markaði.

Í athugasemd frá Fiskmarkaði Suðurnesja segir að verð hafi lækkað nú í janúar, en á það megi benda að ekki hefi verið selt jafn mikið magn af fiski hér á Suðurnesjum í einn og hálfan áratug í janúar. Hins vegar sé rangt að meðalverð á þorski hafi farið niður fyrir 200 kr. í mánuðinum á Suðurnesjum.
 
Hið rétta sé að meðalverð á slægðum þorski hafi verið 281,14 krónur. Á óslægðum þorski hafi meðalverð verið  237,01 króna og meðalverð allra tegunda hafi verið 204,4 krónur.

Þá segir í athugasemdinni að síðustu vikuna í janúar hafi meðalverðin á öllum stærðareiningum verið eftirfarandi: 
Þorskur slægður:  kr. 259,09
Þorskur óslægður: kr. 219,93
Meðalverð allra tegunda: kr. 195,72
 
Af þessu megi sjá að meðalverð á þorski var ekki nálægt 185 kr.
 
„Rétt er þó að benda á að meðalverð janúar í tveimur stærðarflokkum fór niður fyrir það verð sem nefnt er í fréttinni, en um er að ræða rúmlega 32 tonn af heildarmagninu sem var um 739 tonn,“ segir í athugasemd FMS.

Bílakjarninn
Bílakjarninn