Flytja alla fiskvinnslu sína til Grindavíkur
Miklar breytingar hafa orðið á mörkuðum erlendis fyrir íslenskan fisk. Afurðaverð hefur lækkað um 20% og síauknar kröfur eru gerðar um ferskan fisk, sveigjaleika í framleiðslunni og skjóta afgreiðslu pantana. Til að mæta þessum breytingum vinnur Vísir hf. nú að nýju skipulagi sem miðar að því að viðhalda óbreyttum fjölda starfsmanna en bæta framlegð fyrirtækisins sem lækkaði um 50% milli áranna 2012 og 2013. Hjá Vísi starfa um 200 manns við fiskvinnslu og 100 á skipum fyrirtækisins.
Á liðnum árum hefur Vísir hf. byggt upp starfsemi á Djúpavogi, Þingeyri og Húsavík til viðbótar starfsemi fyrirtækisins í Grindavík. Á hverjum þessara staða starfa um 50 manns, bæði fólk með fasta búsetu á svæðunum og verkafólk sem auðveldara á með að færa sig um set.
Stjórnendur Vísis skoða nú þann möguleika að flytja alla fiskvinnslu fyrirtækisins í áföngum til Grindavíkur en vinna um leið að uppbyggingu nýrra starfa í hinum bæjarfélögunum þremur. Línuveiðibátum fyrirtækisins verður fækkað úr fimm í fjóra. Sjómönnum útgerðarinnar mun fækka lítillega þar sem áhafnir verða sameinaðar.
Áform stjórnenda Vísis eru að færa allan tækjabúnað fyrirtækisins á einn stað. Þannig verður sveigjanleiki í starfseminni meiri og framleiðni eykst því auðveldra verður að stýra framleiðslunni í verðmætustu afurðaflokka hverju sinni og bregðast við kröfum erlendra fiskkaupenda. Fyrirtækið telur Grindavík kjörin stað fyrir fiskvinnsluna meðal annars vegna nálægðar við alþjóðaflugvöll og útflutningshöfn.
Markmiðið með ofangreindum hugmyndum er að styrkja fyrirtækið, gera það samkeppnishæfara og tryggja sem best að starfsfólk Vísis og fjölskyldur þeirra geti treyst á fyrirtækið til langframa sem öruggan og traustan vinnustað.
Unnið verður að ofangreindum áformum í samráði við fulltrúa starfsfólks og trúnaðarmenn viðkomandi stéttarfélaga. Stjórnendur Vísis vonast til að sem flestir haldi vinnu sinni, annað hvort í breyttri mynd á sama stað eða í sömu vinnu á nýjum stað. Til að svo megi verða munu þeir leggja sig alla fram af heilindum og fullu afli.