Fluttur á sjúkrahús með slagæðarblæðingu
Á tólfta tímanum í gærkvöldi var óskað eftir sjúkrabifreið og lögreglu að húsi í Njarðvík vegna manns með slagæðablæðingu. Þar hafði maður verið að opna kassa með hníf en svo slysalega vildi til að hnífurinn stakkst í handlegg hans og skarst hann á púls. Hann var fluttur á HSS og síðan á LHS í Fossvogi.