Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fluttur á sjúkrahús með reykeitrun
Mynd úr safni.
Föstudagur 3. október 2014 kl. 13:21

Fluttur á sjúkrahús með reykeitrun

Flytja þurfti karlmann á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í gær, vegna gruns um að hann væri með reykeitrun, eftir að eldur kom upp í húsnæði hans í Keflavík. Þegar lögreglan á Suðurnesjum og slökkvilið komu á vettvang var maðurinn kominn út úr húsnæðinu. Eldsupptök voru þau, að hann hafði vantað eldfæri og kveikt á hellu á eldavél. Síðan sofnaði hann og vaknaði við að íbúðin var orðin full af reyk. Grunur leikur á að húsráðandinn hafi verið ölvaður.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024