Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Flutt á HSS með kúlu á hnakkanum
Þriðjudagur 2. apríl 2013 kl. 14:44

Flutt á HSS með kúlu á hnakkanum

- einn sló til læknis og öðrum vísað úr samkvæmi.

Nokkur tilvik komu upp þar sem lögreglan á Suðurnesjum þurfti að hafa afskipti af fólki vegna ölvunar um páskana.

Í gærkvöld var tilkynnt um ölvaða konu sem hafði dottið á hnakkann heima hjá sér og gat ekki staðið upp. Hún var með stóra kúlu á hnakkanum og var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Í gærkvöld var lögregla einnig kölluð út vegna manns sem var mjög ölvaður á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hann öskraði og sló til læknis sem var að reyna að ræða við hann. Maðurinn var vistaður í fangageymslu meðan hann var að ná áttum.

Þá var annar maður ósáttur við að hafa verið vísað úr samkvæmi og sló hann til manna fyrir utan samkvæmisstaðinn að lögreglumönnum ásjáandi. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð. Loks var tilkynnt um ölvaða stúlku sem lægi ósjálfbjarga í götunni. Hún var aðstoðuð við að komast heim til sín.

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024