Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Flutningabílstjórar ósáttir við umferðarmenningu á Reykjanesbraut
Mánudagur 17. nóvember 2003 kl. 17:56

Flutningabílstjórar ósáttir við umferðarmenningu á Reykjanesbraut

Atvinnubílstjórar á flutningabílum sem aka daglega um Reykjanesbraut eru mjög ósáttir við þá umferðarmenningu sem nú blómstrar á brautinni. Bílstjórar hafa verið í sambandi við Víkurfréttir allt frá því banaslysið átti sér stað fyrir helgi og lýst áhyggjum sínum af stöðu mála. Þeir hafa síðan verið að hringja sig saman og bera saman bækur sínar. Bílstjórarnir segja það vera daglegt brauð að ökumenn fólksbifreiða láti öllum illum látum með blikki ljósa og bílflauti til að reka flutningabílana út á vegaröxlina. Flutningabílstjórar sem Víkurfréttir hafa rætt við segja það ekki koma til mála að aka allt að 49 tonna trukkum út á vegaröxlina, enda sé það ekki heimilt. Þeir vilja hins vegar sjá breytingu á hegðun vegfarenda, enda sé ástandið oft skuggalegt og framúrakstur sem sé ekki verjandi. Þá benda bílstjórar, sem þekkja til aksturs víðar á landinu, á að önnur umferðarmenning sé á brautinni en öðrum vegum landsins.
Umferðarstofa hefur tekið saman minnisblað um akstur á vegaröxlum Reykjanesbrautar og er það birt á vef stofnunarinnar. Minnisblaðið varðar ákvæði umferðarlaga um heimild bifreiðarstjóra, sem aka um Reykjanesbraut, til þess að víkja af akbrautinni út á vegaröxl og aka eftir vegaröxlinni til þess að hleypa umferð fram hjá og aka síðan aftur inn á akbrautina. Þar segir m.a.:

Þjóðvegir - Vegaröxl.
Þjóðvegir hér á landi utan þéttbýlis, sem eru með bundnu slitlagi, eru flestir þannig byggðir að akbrautin nær yfir mestan hluta vegarins, ein akrein í hvora átt. Akbrautinni er skipt langsum með miðlínu og öðrum merkilínum á yfirborði akbrautar. Svæðið við vegarbrún, utan við bundið slitlag, er víðast hvar mjó malborin ræma sem sjaldnast er nægilega breið til þess að leggja þar ökutæki og jaðar akbrautar er yfirleitt ekki markaður með kantlínu.
Reykjanesbrautin er dæmi um þjóðveg þar sem veginum er skipt í akbraut og vegaröxl. Á akbrautinni er ein akrein í hvora átt og eru akreinarnar aðgreindar með miðlínu og öðrum merkilínum á sama hátt og á öðrum þjóðvegum. Mörk akbrautar og vegaraxlar er á Reykjanesbrautinni merkt með brotinni kantlínu í samræmi við ákvæði reglugerðar. Á Reykjanesbraut eru vegaraxlir nægilega breiðar til þess að þar megi aka bifreið. Hönnun vegarins sýnist beinlínis gera ráð fyrir að vegaraxlirnar séu notaðar fyrir umferð ökutækja. Verður að ætla að tilgangurinn með þeirri ráðstöfun hafi fremur verið að beina ökumönnum út á vegaröxl í undantekningartilvikum, til þess að hleypa öðrum fram hjá, allt í þeim tilgangi að auka umferðaröryggi þegar ekið er fram úr. Líklega hefur sú ráðstöfun helgast af því að ekki sé mikil umferð gangandi vegfarenda og hjólreiðamanna um vegaraxlirnar.

Umferðarlögin - Vegaröxl.
Í 2. gr. umferðarlaganna eru skilgreind ýmis orð og hugtök sem koma fram í lögunum. Þar er akbraut skilgreind sem sá hluti vegar sem ætlaður er fyrir umferð ökutækja.
Skilgreining á vegaröxl kemur ekki fram í 2. gr. laganna en í 1. mgr. 11. gr. kemur fram að vegaröxl er sá hluti vegar sem er utan akbrautar og er ekki ætlaður fyrir umferð ökutækja.
Vegaröxl er fyrst og fremst svæði fyrir umferð gangandi vegfarenda en einnig öryggissvæði fyrir ökutæki sem þarf að stöðva t.d. vegna bilunar.

Í niðurstöðum Umferðarstofu segir: Bifreiðastjórum er heimilt samkvæmt umferðarlögunum að hleypa umferð fram hjá sér með því að aka af akbraut út á vegaröxl enda sýni þeir ýtrustu varúð og aki varlega. Jafnframt má vera ljóst að þeim er ekki heimilt að aka áfram eftir vegaröxlinni, annað hvort skal aka strax inn á akbrautina eða nema staðar. Þegar ekið er af vegaröxl inn á akbrautina, skal víkja fyrir umferð um akbrautina. Vegaröxl er samkvæmt umferðarlögunum, eins og þegar hefur verið lýst, fyrst og fremst svæði fyrir gangandi vegfarendur en auk þess öryggissvæði fyrir ökutæki sem t.d. þarf að stöðva vegna bilunar. Landið, sem Reykjanesbrautin liggur um, er víða úfið hraun þar sem erfitt er um vik að víkja af akbrautinni, t.d. ef ökutæki bilar. Umferð um brautina er með þeim hætti að stórhættulegt er að skilja þar eftir ökutæki á akbrautinni. Það fer ekki saman að nota vegaraxlir á Reykjanesbraut fyrir gangandi vegfarendur, fyrir hjólreiðamenn, sem öryggissvæði og sem akbraut, allt í senn.

Myndin er af umferð um Reykajnesbraut en tengist ekki efni fréttarinnar.

VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024