Flutningabíll valt á Reykjanesbraut
Nokkur umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Flutningabíll valt á Reykjanesbraut í fyrradag þegar vindhviða skall á honum. Sjúkraflutningamenn aðstoðuðu ökumanninn við að komast út um framrúðu bifreiðarinnar. Hann fann til verkja eftir óhappið.
Enn fremur óku tveir ökumenn út af á Reykjanesbraut. Einn til viðbótar var að búa sig undir að aka inn í hringtorg og var þá ekið aftan á bifreið hans. Fleiri óhöpp urðu en þau voru smávægileg og engin slys urðu á fólki.
Þá voru nokkrir kærðir fyrir hraðakstur. Sá sem hraðast ók mældist á 130 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km.