Flugvél frá NASA með aðsetur á Keflavíkurflugvelli
Rannsóknarflugvél NASA Earth Resources (ER-2) er væntanleg til Íslands föstudaginn 30. mars 2012. Flugvélin er sérhönnuð til að fljúga í hárri lofthæð og útbúin fullkomnum mælitækjum. Vélin mun dvelja á Íslandi í mánuð og sinna rannsóknum í mikilli lofthæð yfir Grænlandi. Markmiðið með veru vélarinnar hér á landi er að mæla nákvæmni nýlega þróaðs mælitækis sem nefnist MABEL (Multiple Altimeter Beam Experiment Lidar). Mælingarnar eru hluti af þróunarferli sambærilegs mælitækis er verður hluti af IceSat-2, gerfihnetti frá NASA sem verður loftsettur árið 2016 og er ætlað að fylgjast með umhverfis- og loftslagsbreytingum. Verkefnið mun styðja við rannsóknir á loftlagsbreytingum með þróun betri aðferða við að mæla bráðnun heimskautaíss.
Flugvélin er gerð út frá Rannsóknarflugsetri NASA í Edwards, Kaliforníu. Flugmaður vélarinnar er Timothy L. Williams, reyndur flugmaður sem starfaði lengi hjá Flugher Bandaríkjanna.