Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Flugvél feykti gámi á dráttartæki
Frá flughlaðinu við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Myndin tengist ekki atvikinu í fréttinni.
Föstudagur 9. október 2015 kl. 13:18

Flugvél feykti gámi á dráttartæki

Verr hefði getað farið en raun varð á þegar flugvél tók af stað úr stæði á Keflavíkurflugvelli með þeim afleiðingum að gámur sem stóð nærri henni tókst á loft og hafnaði á dráttartæki.

Atvikið, sem átti sér stað í gærdag,  varð með þeim hætti að flugvélinni átti að ýta úr stæði áður en hreyflar yrðu ræstir. Þess í stað fór vélin af stað undir eigin afli og var henni beygt til hægri með þeim afleiðingum að hreyflar hennar feyktu gáminum á vinnutækið. Hann hafði staðið milli  umræddrar vélar og fraktvélar áður en hann tókst á loft. Má leiða líkur að því að hefði vinnutækið ekki verið staðsett milli vélanna hefði gámurinn hafnað á síðarnefndu vélinni.

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024