Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Flugvél Air Berlin kyrrsett á Keflavíkurflugvelli
Föstudagur 20. október 2017 kl. 08:00

Flugvél Air Berlin kyrrsett á Keflavíkurflugvelli

Isavia kyrrsetti í gærkvöldi flugvél Air Berlin á Keflavíkurflugvelli vegna notendagjalda sem eru í vanskilum sem eru tilkomin vegna greiðslustöðvunar Air Berlin. Isavia hefur heimildir í loftferðalögum til þess að kyrrsetja loftför svo tryggja megi greiðslu vangoldinna gjalda, og hefur því úrræði verið beitt einu sinni áður á Keflavíkurflugvelli.

Um er að ræða vanskil á gjöldum sem stofnaðist til áður en Air Berlin fór í greiðslustöðvun. Ljóst er að framkvæmdin mun hafa áhrif á ferðir þeirra farþega sem áttu bókað flug með Air Berlin og harmar Isavia að til þessa hafi þurft að koma. Þessi aðgerð er hins vegar eina úrræðið sem félagið hefur til þess að tryggja greiðslu skuldar Air Berlin. 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Starfsfólk Isavia er til taks á Keflavíkurflugvelli í nótt ef kemur til þess að aðstoða þurfi þá farþega sem verða fyrir áhrifum af þessari aðgerð, segir í tilkynningu frá félaginu