Flugvallarvegurinn er bæjarskömm

Íbúar við Háaleiti í Keflavík hafa einnig verið í sambandi við blaðið vegna Flugvallarvegar og segja farir sínar ekki sléttar. Þegar þurrt sé í veðri standi rykmökkur frá umferð um Flugvallarveginn yfir nálæga byggð og ekki sé hægt að hafa opna glugga fyrir mold og ryki frá Flugvallarvegi.
Meðfylgjandi mynd tók vegfarandi um Flugvallarveg í hádeginu og hún segir meira en mörg orð um ástand vegarins, sem lesandi kaus að kalla bæjarskömmina.