Flugmaðurinn kominn á sjúkrahús í Keflavík
Flugmaður flugvélar frá Air France sem lenti á Keflavíkurflugvelli nú eftir hádegið er kominn á sjúkrahús í Keflavík. Flugmaðurinn var fluttur á sjúkrahús í börum en var með meðvitund.
Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli eftir að tilkynning barst frá flugvél Air France um að annar flugmanna vélarinnar væri veikur. Hættuástand er á næsthæsta stigi. Flugvélin er að koma frá París og var á leið til JFK flugvallar í New York í Bandaríkjunum. 232 farþegar er um borð og allt að 25 tonn af eldsneyti eru í vélinni.
Myndir: Hilmar Bragi Bárðarson