Fréttir

Flugfiskurinn við Keflavíkurflugvöll
Þriðjudagur 17. janúar 2017 kl. 06:00

Flugfiskurinn við Keflavíkurflugvöll

Isavia og Kadeco boða til opins fundar um tækifæri til atvinnuuppbyggingar í sjávarútvegi á nærsvæði Keflavíkurflugvallar miðvikudaginn 18.janúar kl.14:00 -16:00 í Hljómahöll Reykjanesbæ.

Mikil uppbygging er fyrirhuguð á svæðinu í tengslum við spár um aukinn fjölda farþega og fleiri tengingar við nýja áfangastaði. Þessi uppbygging skapar m.a. tækifæri fyrir útflutningsgreinar sem hafa hag að því að starfa í nálægð við flugvöllinn.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Dagskrá:

Verstöðin Ísland - Hagræðing og landfræðileg samþjöppun í íslenskum sjávarútvegi 1993-2013:

Bjarki Vigfússon, hagfræðingur hjá Íslenska sjávarklasanum.


Fiskur á flugi - tækifæri og þróun í flugflutningum:

Mikael Tal Grétarsson, forstöðumaður útflutnings hjá Icelandair Cargo.


Ferskur fiskur upp á hvers manns disk! – Markaðir og þróun í útflutningi á ferskum fiski:

Dr. Jón Þrándur Stefánsson, yfirmaður greiningar hjá Markó Partners.


Ferskur fiskur, mikilvægi flugsins:

Birgir Össurarson, sölu- og markaðsstjóri Ice fresh Seafood.