Flugfarþegi með heiftarlegt hnetuofnæmi
Flugfarþegi sem var á leið frá Íslandi til Halifax veiktist svo af hnetuofnæmi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni að kalla þurfti til lækni, auk þess sem lögreglunni á Suðurnesjum var gert viðvart um málið. Farþeginn, sextán ára stúlka, var með fjölskyldu sinni á ferðalagi þegar hún veiktist.
Erlendur læknir sem staddur var í flugstöðinni á þessum tíma hlúði að stúlkunni og veitti henni nauðsynlega aðstoð. Lögreglumenn aðstoðuðu svo fjölskylduna, sem fresta þurfti ferðalaginu um sinn, við að komast á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja