Fréttir

Flugfarþegi fékk heilablóðfall
Miðvikudagur 23. maí 2012 kl. 09:09

Flugfarþegi fékk heilablóðfall

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Tilkynning barst til lögreglunnar á Suðurnesjum skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt þess efnis að flugvél væri að koma inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli með farþega sem væri meðvitundarlaus eftir heilablóðfall. Búið væri að kalla út sjúkrabifreið. Reyndist um að ræða tæplega sextugan karlmann. Læknir og sjúkralið hlúðu að honum og var hann fluttur á Landspítalann í Fossvogi.

Mynd úr safni.

Eignasalan
Eignasalan