Bygg
Bygg

Fréttir

Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Suðurnes á morgun
Mánudagur 27. desember 2004 kl. 12:16

Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Suðurnes á morgun

Björgunarsveitin Suðurnes mun á morgun standa fyrir sinni árlegu flugeldasýningu. Skemmtunin hefst kl. 20:00 við hús sveitarinnar að Holtsgötu 51 í Njarðvík. Jólasveinarnir verða þar í sínu fínasta pússi og Tónlistarskóli Reykjanesbæjar mun leika nokkur lög. Ásamt því verður kvennasveitin Dagbjörg með heitt kakó fyrir gesti og gangandi. Sjálf flugeldasýningin hefst svo kl. 20:30.

„Sýningin í ár verður með svipuðu sniði og í fyrra en að vísu leggja strákarnir okkar alltaf meira og meira upp úr sýningunni ár hvert,“ sagði Sigurður B. Magnússon, flugeldastjóri, í samtali við Víkurfréttir.

Flugeldasalan opnar á morgun kl. 10:00 og er opin til kl. 22:00 fram að gamlársdegi en þá er opið til 16:00.

„Við leggjum töluvert upp úr því að hafa flugeldasýninguna veglega og fína og þetta markar upphafið að flugeldasölunni okkar. Þetta er stærsta flugeldasalan á Suðurnesjum hér í húsinu en annar söluskúr verður fyrir utan Reykjaneshöllina,“ sagði Gunnar Stefánsson formaður björgunarsveitarinnar.

Hægt er að fara á vefsíðu Björgunarsveitarinnar Suðurnes og kynn sér þá flugelda sem verða til sölu í ár.

Björgunarsveitin Suðurnes

Myndin: Gunnar og Sigurður með tvær bombur.

VF-mynd: Jón Björn
[email protected]
Bílakjarninn
Bílakjarninn