Bygg
Bygg

Fréttir

Flugeldasalan Keflvíkingum mikilvæg
Föstudagur 28. desember 2007 kl. 14:36

Flugeldasalan Keflvíkingum mikilvæg

Knattspyrnudeild Keflavíkur opnar flugeldasölu sína að Iðavöllum.  Flugeldasalan er jafnan ein stærsta fjáröflun knattspyrnudeildarinnar og mikilvægur hluti af starfi hennar.

Þegar ljósmyndara Víkurfrétta bar að garði voru Keflvíkingar í óða önn að bera inn flugeldana og verður eflaust mikið að gera hjá þeim þessa vertíðina. Ólafur Bjarnason, stjórnarmaður í knattspyrnudeildinni, fer fyrir flugeldasölunni þetta árið.

Hann hefur verið viðloðandi flugeldasölu síðasta aldarfjórðunginn, fyrsta hjá björgunarsveitinni og síðustu árin hjá Keflavík. „Ég lít eiginlega ekki á okkur og björgunarsveitina sem samkeppnisaðila, en ég hef hins vegar meiri áhyggjur af einkaaðilum sem eru komnir inn á markaðinn. Ég er alfarið á móti því og hvet þá sem ætla að kaupa sér flugelda að íhuga hvar peningarnir þeirra lenda.“

Salan hefst kl. 10 í dag og er opin frá 10 til 22 alla daga til gamlársdags þegar opið er frá 10 til 16.
Bílakjarninn
Bílakjarninn