Föstudagur 18. júlí 2003 kl. 13:22
Flugbrautir á Keflavíkurflugvelli malbikaðar

Í morgun var hafist handa við að malbika eina af flugbrautum Keflavíkurflugvallar, svokallaða norður-suður flugbraut. Það eru starfsmenn Íslenskra aðalverktaka sem vinna verkið en einnig er unnið að því að fræsa gamalt slitlag. Unnið er dag og nótt við fræsingar, enda flugbrautin ógnarstór.Allri flugumferð er á meðan beint um austur-vestur flugbraut og þá fer öll flugumferð yfir byggðina í Njarðvík með þeim afleiðingum að við sem búum eða störfum undir aðflugslínu erum rækilega minnt á það hversu umfangsmikil flugstarfsemin er á Keflavíkurflugvelli.
Myndin var tekin við malbikunarframkvæmdir á Keflavíkurflugvelli í morgun.
VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson