HSS
HSS

Fréttir

Flugakademía Keilis gerir samning við Keflavík
Mynd: Keflavik.is
Föstudagur 14. október 2016 kl. 11:27

Flugakademía Keilis gerir samning við Keflavík

Flugakademía Keilis og Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hafa gert með sér styrktar- og auglýsingasamning til tveggja ára. Samstarfið er liður í að efla sýnileika skólans og auka áhuga ungs fólks á Suðurnesjunum á flugtengdu námi. Árlega stunda um 200 nemendur nám í Flugakademíu Keilis en skólinn býður upp á einka- og atvinnuflugmannsnám auk fimm anna bóklegs og verklegs iðnnám fyrir flugvirkja. 

Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíu Keilis, og Ingvi Hákonarson, formaður Körfuknatleiksdeildar Keflavíkur, undirrituðu samninginn þann 7. október síðastliðinn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn