Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Fréttir

Flugsveit bandaríska flughersins við loftrýmisgæslu
Flugsveitin kemur til landsins með fimm F16 orrustuþotur.
Þriðjudagur 23. júlí 2019 kl. 09:47

Flugsveit bandaríska flughersins við loftrýmisgæslu

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast að nýju með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Alls munu allt að 110 liðsmenn Bandaríska flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fimm F16 orrustuþotur. Frá þessu er greint á vef Landhelgisgæslunnar.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 29. til 31. júlí.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland.Flugsveitin verður staðsett á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Ráðgert er að verkefninu ljúki fyrir lok ágúst.

Verkefnið er framkvæmt af Landhelgisgæslu Íslands í samvinnu við Isavia.