Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Flotinn heldur til veiða
Mánudagur 20. febrúar 2017 kl. 09:44

Flotinn heldur til veiða

Það var mikið um að vera á hafnarbökkum bæði Grindavíkur- og Sandgerðishafna í gærkvöldi. Um leið og ljóst var að sjómenn höfðu samþykkt kjarasamninga voru áhafnir kallaðar um borð og skipin gerð klár á sjó.
 
Meðfylgjandi myndir voru teknar við Sandgerðishöfn seint í gærkvöldi þegar Berglín GK var gerð klár til að halda til veiða. Önnur myndin sýnir þegar kostinum var komið um borð en hin þegar unnið var að því að koma toghlerunum um borð. Það gekk reyndar ekki áfallalaust fyrir sig því glussakerfi kranans á skipinu gaf sig eftir margra vikna stopp. Enginn slasaðist en stjórnandi kranans stóð eftir löðrandi í olíu.
 
Myndirnar tók Hilmar Bragi við Sandgerðishöfn í gærkvöldi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024