Flogið til Manchester 4 sinnum í viku
Áætlunarflug easyJet á milli Íslands og Manchester í Englandi verður aukið frá og með febrúar næstkomandi þegar flogið verður fjóra daga vikunnar í stað tveggja nú. Fjölgunin markar ársafmæli Manchester-flugs easyJet en ástæða hennar er fyrst og fremst miklar vinsældir flugleiðarinnar og telja forráðamenn breska flugfélagsins að eftirspurnin sé ekkert að minnka.
Flogið verður til Manchester allt árið um kring á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum.