Fljúgandi háll Grindavíkurvegur
Grindavíkurvegurinn er mjög háll þessa stundina að sögn vegfaranda sem hafði samband við Víkurfréttir rétt í þessu. Lítil pallbifreið lenti þversum á veginum, en ekki urðu slys. Fólk er hvatt til að fara varlega, þar sem fyrsta alvöru næturfrost haustsins virðist hafa orðið í nótt.Margir þurftu að skafa rúður í morgun, en morgunsólin mun örugglega hjálpa við að bræða hrím af gluggum. Sólin er hins vegar lágt á lofti og getur verið varasöm.