Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fljótandi kókaín í farangri farþega á Keflavíkurflugvelli
Mánudagur 24. apríl 2017 kl. 15:51

Fljótandi kókaín í farangri farþega á Keflavíkurflugvelli

Efninu komið fyrir í brúsum sem merktir voru sem munnskol, sápur og sjampó

Tollverðir í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli stöðvuðu nýlega smygl á tæpum tveimur lítrum af fljótandi kókaíni til landsins. Efnin fundust við hefðbundið eftirlit í farangri tæplega þrítugs karlmanns sem var að koma frá Amsterdam. Vökvanum hafði verið komið fyrir í fjórum brúsum sem merktir voru sem munnskol, sápur og  sjampó. Samtals var um að ræða 1.950 millilítra.

Þetta er í fyrsta sinn sem lagt er hald á fljótandi kókaín hér á landi og er mjög erfitt að greina þessa gerð af kókaíni við gegnumlýsingar og röntgenmyndatökur. Málið var kært til Lögreglunnar á Suðurnesjum sem hefur farið með rannsókn þess. Hún er nú á lokastigi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Sagt er frá málinu á vef Tollstjóra. Þar er minnt á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Einnig má koma ábendingum  um smygl inn á símsvara 552-8030 hjá embætti Tollstjóra.