Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Flippið tekið lengra í Keili
Þriðjudagur 22. október 2013 kl. 11:26

Flippið tekið lengra í Keili

Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra, og Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, opnuðu í formlega fyrir aðgang að upptökum á netinu sem innihalda kennsluefni í náttúrufræðum fyrir 8. - 10. bekk grunnskóla. Efnið er ætlað fyrir svokallaða flippaða eða speglaða kennslu. Athöfnin fór fram í Keili á Ásbrú en Keilir er leiðandi hér á landi í að innleiða þessa nýju kennsluhætti

Á dögunum var opnuð heimasíða með kennsluefni í náttúrufræði ætlaður nemendum og kennurum í 8. - 10. bekk grunnskóla. Vefurinn er afurð grunnskólakennara og Keilis við þróun speglaðra kennsluhátta. Mikill áhugi er meðal skólafólks á speglaðri kennslu og hafa yfir þúsund manns hafa heimsótt Keili á þessu ári til að kynna sér slíka kennsluhætti sem Keilir hefur innleitt undanfarin ár. Þá komu um 500 manns á ráðstefnu hjá Keili í vor um sama efni. Með opnun á síðunni eru stigin alvöru skref í þessa átt. Kennararnir Ragnar Þór Pétursson og Þormóður Logi Björnsson hafa skipulagt og tekið upp. Þetta þýðir að allir kennarar og nemendur á landinu geta nýtt sér þessar innlagnir.

Uppbygging námsefnisins og heimasíðunnar, sem er styrkt af Þróunarsjóði námsganga, Reykjanesbæ og Keili, er átaksverkefni og hluti af þróun speglaðra kennsluhátta - flipped classroom - en með tilkomu hinnar nýju leiðar geta nemendur hlustað heima á kennara fjalla um efnið eins oft og þeir vilja og þegar þeir vilja. Þannig koma nemendur undirbúnir í skólann þar sem þeir taka til við að vinna verkefni. Þarna er sem sagt hlutverkum snúið við, þar sem heimanámið er fært inn í skólana og rödd kennarans fer með nemandanum heim. Þetta er í raun bylting í kennsluháttum og er Ísland fyrsta landið til að taka heila kennslugrein fyrir heilu árgangana og bjóða nemendum sínum, segir Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis.

Á meðfylgjandi myndum hér að ofan má sjá þá Illuga og Árna „sprengja“ sig inn í framtíðina en þeir félagar opnuðu vefinn með því að stinga á blöðrur og opna vefgáttina með hvelli.

Hægt er að skoða heimasíðuna á slóðinni www.flipp.is. Einnig er hægt að kynna sér nánar speglaða kennsluhætti á heimasíðu Keilis á slóðinni www.keilir.net/flipp



Við sama tækifæri verður undirritaður samningur milli Keilis og Heiðarskóla í Reykjanesbæ um að allt efni í stærðfræði 8. - 10. bekkja verði tekið upp með sama hætti. Þá er í undirbúningi að taka upp þrjár aðrar kennslugreinar með sama hætti. Óhætt er að segja að mikill áhugi skólafólks sé á að laga lærdómsferlið betur að nútímanum.  Spegluð kennsla virðist geta þjónað þeim markmiðum vel og Ísland er sannarlega í forystu með þetta skemmtilega form á námi og kennslu.

VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024