Bygg
Bygg

Fréttir

FLE:Stefnt að verklokum á 20 ára afmælinu.
Þriðjudagur 25. júlí 2006 kl. 15:05

FLE:Stefnt að verklokum á 20 ára afmælinu.

Verslunar og þjónusturými Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar mun ríflega tvöfaldast þegar framkvæmdir við stækkun lýkur en stefnt er að því að það verði næsta vor á 20 ára afmæli FLE. Lokaáfangi þeirra er nú að hefjast. Heildarkostnaður við allar stækkunarframkvæmdirnar er áætlaður um sjö milljarðar króna.

Norðurbygging FLE var um 22 þúsund fermetrar þegar framkvæmdir hófust árið 2003 en verður orðin 38,500 fermetrar þegar framkvæmdum lýkur vorið 2007. Nemur stækkunin alls um 16.500 fermetrum eða sem svarar allri suðurbyggingu flugstöðvarinnar.

Forsvarsmenn FLE efndu til blaðamannafundar í morgun þar sem framkvæmdirnar voru kynntar en lokaáfangi þeirra er nú að hefjast með enn frekari breytingum á 2 hæð norðurbyggingar flugstöðvarinnar.  Verulegar breytingar eru fyrirhugaðar á innritunar og komusal stöðvarinnar, m.a mun innritunarborðum fjölga til muna.

Fyrst og fremst er það mikil aukning flugfarþega sem kallar á þessar breytingar.  Þegar flugstöðin var byggð á sínum tíma var gert ráð fyrir að farþegaveltan yrði 460 þúsund manns. Reiknað er með 2 milljónum farþega í ár og árið 2015 má reikna með að þeir verði 3,2 milljónir miðað við þessa þróun.

Mynd: Frá nýju þjónustusvæði Flugstöðvarinnar í morgun en þar hafa ýmsar verslanir verið að koma sér fyrir undanfarið.

 

VF-mynd:elg

Bílakjarninn
Bílakjarninn