Fleiri flugfarþegar í júlí

Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæplega 12% í júlí miðað við sama tíma í fyrra, úr 253 þúsund farþegum árið 2009 í rúmlega 283 þúsund farþega nú. Farþegum til og frá Íslandi fjölgaði um 3% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um tæplega 63%.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				