Fleiri börn veikjast nú af svínaflensunni
Langflest inflúensutilfelli hérlendis, undanfarna daga og vikur, greinast hjá börnum á aldrinum 0-9 ára. Þetta er marktæk breyting frá því í júlí og ágúst, þegar flestir sem veiktust voru á aldrinum 15-30 ára. Breytingin birtist skýrt í gögnum sem Guðrún Sigmundsdóttir, yfirlæknir hjá embætti sóttvarnalæknis, hefur tekið saman á grundvelli skráningar heilbrigðisþjónustunnar á inflúensulíkum einkennum (sjá meðfylgjandi glæru nr. 5, rauð lína).
Á sama tíma og inflúensan leggst hlutfallslega meira á börn en áður fækkar veikindatilfellum í aldurshópnum 15-30 ára. Sömu breytingu á aldursdreifingu inflúensusjúklinga má sjá hjá þeim sem eru með staðfesta inflúensu A(H1N1)v 2009 samkvæmt veirufræðideild Landspítala.
Fjarvistaskráning grunnskólanemenda í Mentor staðfestir sömuleiðis þessa fjölgun tilfella hjá börnum. Fjarvistum nemenda í grunnskólum landsins fjölgaði mjög í október.
Á reglubundnum símafundi fulltrúa almannavarna og heilbrigðiskerfisins í morgun komu fram ákveðnar vísbendingar um að inflúensufaraldurinn hefði mögulega náð hámarki á höfuðborgarsvæðinu, á Akureyri og víðar. Annars staðar á landsbyggðinni er ástandið sagt svipað og var í vikunni þar á undan en á stöku stað er faraldurinn hins vegar í sókn, til dæmis á Húsavík. Starfsmenn heilsugæslustöðva sjá víða glögg merki um að hlutfallslega fleiri börn veikist nú en áður.