FLE: Farþegum fjölgaði í mars

Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 9% í mars miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmlega 135 þúsund farþegum árið 2007 í tæplega 147 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi tæpum 12% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækkaði um rúm 10%. Þetta kemur fram á heimasíðu flugstöðvarinnar.
Loftmynd/Oddgeir Karlsson

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				