Flaggað fyrir amerískum verslunardögum

Ætlunin er að kynna íbúum varnarstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli þá verslun og það vöruúrval sem í boði er í Reykjanesbæ. Bandaríkjamenn hafa verið duglegir að sækja verslun og þjónustu til Suðurnesja. Það þótti kjörið að koma á fót sérstökum verslunardögum til að halda þessari góðu þróun við. Ekki veitir af að láta vita af sér annað slagið því endurnýjun Varnarliðsfólks er afar hröð og koma 4-8 fjölskyldur til landsins hvern laugardag en hefðbundinn verutími þar er u.þ.b. 1-2 ár í senn.