Bygg
Bygg

Fréttir

FL-Group fær lóð í Helguvík fyrir flugvélaeldsneytistanka
Föstudagur 29. apríl 2005 kl. 18:37

FL-Group fær lóð í Helguvík fyrir flugvélaeldsneytistanka

FL-Group hefur sótt um lóð í Helguvík undir tanka fyrir flugvélaeldsneyti og tengda starfsemi. Fyrirhuguð lóð er um 32.000 fermetrar að flatarmáli. Stefnt er að því að þaðan verði eldsneytinu dælt með 4400 metra lögn beint upp á Keflavíkurflugvöll. Stöð 2 greindi frá þessu í kvöld.

Á fundi atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar í gærkvöldi var jafnframt lögð fram viljayfirlýsing milli FL-Group og Reykjanesbæjar þar sem lýst er yfir vilja til víðtæks samstarfs um mögulega uppbyggingu mannvirkja við Helguvík til geymslu og flutnings eldsneytis sem og uppbyggingu á nauðsynlegum rekstri tengdum því.

Með vísan til viljayfirlýsingarinnar samþykkti bæjarstjórn að úthluta FL-Group hf. lóð undir eldsneytisbirgðastöð í Helguvík að Selvík 11 með frekari stækkunarmöguleikum.

Ekki þarf að fjölyrða um hversu mikil áhrif þetta getur haft á starfsemi hafnarinnar í Helguvík, að ógleymdu því að með þessari ráðstöfun munu flutningar flugvélaeldsneytis um Reykjanesbraut nær leggjast af. Þá mun minnkandi umferð þungra flutningabíla minnka slit á gatnakerfinu og mengun því tengdu.

Þorsteinn Erlingsson, formaður atvinnu- og hafnarráðs, sagði í samtali við Víkurfréttir að þeir væru afar ánægðir og taldi víst að tekjur hafnarinnar ættu eftir að stóraukast í framhaldinu. „Við erum búnir að vera að berjast fyrir þessu máli og benda á þessa góðu aðstöðu síðustu árin þannig að við erum glöð að sjá að þessi mál eru í réttum farvegi.“

Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri FL-Group, sagði nú síðdegis við Stöð 2 að það væri í skoðun hjá félaginu að flytja inn eldsneyti til eigin nota. Í framhaldinu verði það skoðað hvort félagið fari í sölu á eldsneyti til annarra flugfélaga. Þá ráði slysa- og umhverfissjónarmið einnig miklu. Í dag fari um 5-6000 eldsneytisflutningabílar Reykjanesbrautina á ári með flugvélaeldsneyti. Fyrst og fremst sé það hins vegar til hagsbóta fyrir FL-Group að koma sér upp birgðastöð fyrir eigin flugflota, sagði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Bílakjarninn
Bílakjarninn