Fjúkandi þakplötur sköpuðu hættu
Þakplötur losnuðu af gömlu iðnaðarhúsnæði við Strandgötu á laugardaginn. Þetta er í annað sinn á nokkrum mánuðum sem þakplötur losna og í bæði skiptin var Björgunarsveitin Sigurvon kölluð á staðinn og sá hún um að negla þakplöturnar niður.
Eigendur hússins hafa ekki farið að tilmælum um að fyrirbyggja að þakplötur losni, en þarna hefði getað orðið stórslys ef ein þakplatan, sem endaði hinum megin við götuna, hefði lent á gangandi vegfaranda eða bíl.
Frétt af www.245.is
Mynd/Smári - www.245.is