Fjúkandi fiskikör á víð og dreif í Sandgerði
Í Sandgerði er fjöldinn allur af lausum fiskikörum fjúkandi eins og pappakassar á víð og dreif um stórt svæði á hafnarsvæðinu. Þar er mikill sjógangur og gengur sjór og möl upp á land, að sögn Hilmars Braga, fréttamanns VF, sem er á vettvangi og tók meðfylgjandi mynd fyrir stundu. Björgunarsveitir eru ásamt bátaeigendum þessa stundina að tryggja landfestar á bátum í höfninni en heldur virðist vera að bæta í vind.