Fjörutíu óku of hratt
Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært um 40 ökumenn fyrir of hraðan akstur það sem af er vikunni. Flestir voru staðnir að verki á Sunnubraut í Reykjanesbæ. Einn sem ók á meir en tvöföldum hámarkshraða var sviptur ökuleyti til bráðabirgða á staðnum.
Þá voru ökumenn einnig staðnir að hraðakstri á Reykjanesbraut. Sá sem hraðast ók mældist á 128 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km.