Fjöruruslið fer til Sorpu
– enginn vildi taka ábyrgð á 3500 kg. af sjóreknu rusli
Eins og við greindum frá nýverið þá hreinsaði Blái herinn á vordögum rusl úr fjörum sem fyllti 24 fiskikör og vegur 3500 kg. Greint var frá því að ruslinu yrði ekki fargað nema greitt væri fyrir það uppsett verð.
Tómas Knútsson stofnandi Bláa hersins hefur unnið brautryðjendastarf við hreinsun í höfum landsins sagðist á Facebook síðu sinni vera orðinn ráðalaus yfir áhugaleysi og sé viðleitni hans til þess að gera samfélaginu eitthvert gagn á þrotum.
„Ég hef leitað til ýmissa aðila um að kaupa þetta af mér og koma í rétta förgun en það er enginn vilji til að gera það. það er því tvennt í stöðunni, borga förgunarkostnaðinn eða skila ruslinu aftur í sjóinn,“ sagði Tómas m.a.
Eftir frétt Víkurfrétta fóru hjólin að snúast og umræðan varð töluverð um ruslið sem Tómas og félagar í Bláa hernum höfðu hreinsað upp úr fjörum á svæðinu.
Nú er staðan sú að Sorpa mun taka við ruslinu og Tómas mun fylgjast með ferlinu og skrá það niður, þ.e. hvað af ruslinu mun fara til förgunar og hvað til endurvinnslu.